Minning

Gengið frá AðalvíkÍ dag eru tvö ár frá því að hann Beggi minn yfirgaf þetta líf. Þó svo að tíminn sem við fengum saman væri allt of stuttur þá var hann góður og eru það margar góðar minningar sem koma upp í hugann. Tíminn er svo afstæður, stundum flýgur hann og stundum stoppar hann og hefur það verið þannig síðustu tvö árinn hjá mér og eflaust fleirum. Nú er ég á lokasprettinum í náminu sem Beggi hvatti mig í, og er það alveg á hreinu að ég hefði aldrei komist í gegnum þetta án hans. Hann gaf mér sjálfstraust og trú á sjálfan mig, þó svo að hann hafi horfið á braut þá er hann hvatning mín og verður það lífið út.  Er ég svo þaklát fyrir allt sem hann gaf mér. 

 

Þessi texti er úr smiðju Megasar en hann var í miklu uppáhaldi hjá Begga.  

 
Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
en ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer
en ég vona bara hann hugsi soldið hlýlega til mín
og leiði mig upp á endanum til þín

Ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn
svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn
í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð
og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð

Það er margt sem angrar en ekki er það þó biðin
því ég sé það fyrst á rykinu hve langur tími er liðinn
og ég skrifa þar eitthvað með fingrinum sem skiptir öllu máli
því að nóttin mín er dimm og ein og dagurinn á báli.

Já og andlitið þitt málað hve ég man það alltaf skýrt
augnlínur og bleikar varir brosið svo hýrt
jú ég veit vel að ókeypis er allt það sem er best
en svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst

Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér
og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér
og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á
en ég sakna þín mest á nóttunni er svipirnir fara á stjá

Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær
stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær
ég man þig þegar augu mín eru opin hverja stund
en þegar ég nú legg þau aftur fer ég á þinn fund

                                                                      Megas


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Viðarsdóttir

Beggi var einn af STÓRU gullmolunum í tilverunni hjá okkur.

Hans er sárt saknað ...og ótrúlega mikið ennþá eftir tvö ár.

Anna Viðarsdóttir, 28.5.2008 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband