Góður dagur

Þórhildur stúdent, ég og SvavarÞað er búið að vera mikið að gera og lítill tími til að setja inn fréttir. Þann 22. júní á afmælisdaginn hans Begga útskrifaðist Þórhildur sem stúdent, sem sagt komin með norskt stúdentspróf og er ég ekki lítið stolt af stelpunni minni.  Þennan sama dag byrjaði hún að vinna á Åslund sykehjem, verður að vinna þar í sumar og vonandi áfram með skólanum næsta vetur.

Sama dag 22. júní fékk ég tilboð í húsið okkar, gerði svo gagntilboð og því var tekið á afmælisdaginn hennar Gunnhildar 26. júní.  Finnst það svolítið táknrænt.

Þann 22. júní komu líka Rósa og Jökull í heimsókn. En Jökull er vinur Svavars frá því að við bjuggum í Maríubakkanum og Rósa er mamma hans. Rósa stoppaði í fjóra daga en Jökull verður hjá okkur til 8. júlí.

22. júní var líka síðasti dagurinn í skólanum hjá Svavari, komin í langþráð sumarfrí drengurinn.

Í síðustu viku hoppaði Þórhildur um 2 belti í karate. Hún fékk blátt belti og var með það í nokkrar mínútur áður en hún tók það fjólubláa. Hún kann orðið að verja sig stelpan. 27. júní fór hún til Tønsberg í æfingabúðir í karate, en þeim lauk í dag 30. júní.

Á miðvikudaginn fórum við, þ.e.a.s. ég, Svavar, Jökull og mamma til Tønsberg og vorum með Þórhildi í tjaldi þar í tvær nætur.  Tønsberg er mjög fallegur strandbær, alveg þess virði að gera sér ferð þangað.

Á föstudaginn keyrðum við svo áfram upp til Bø en þar er sommerland, vorum eina nótt á frábæru tjaldstæði sem heitir  Bø Camping og er í um 500 metra fjarlægð frá sommerland.

 

Þórhildur karatestelpaKomum heim í kvöld eftir góða ferð, nú er bara að klára verkefnin í sumarkúrsinum og undirbúa komu fleiri gesta. Hrefna kemur á miðvikudag, hún og Jökull fara svo 8. júlí, en þann 9. júlí kemur slatti og svo fleiri og fleiri. Hlökkum mikið til að fá gestina. 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl verið þið stórfjöldskylda í norge.  Til hamingju með stúdentsprófið og karatebeltin 2 Þórhildur.  Og til hamingju með að ná að selja húsið svona fljótt og allt hafi gengið vel, ég veit að þetta hefur verið erfið ákvörðun að selja húsið en það hefur verið léttir þegar það var búið og gert. Svo fer nú að líða að stóru veislunni og það verður gaman að fá hana Önnu og Alla í heimsókn til sín og fleiri íslendinga, vini og ættingja.  Hafið það betur en hugsast getur. Kveðja úr Sólinn í Mosó Steinunn

Steinunn (IP-tala skráð) 2.7.2007 kl. 18:03

2 Smámynd: Guðbjörg Guðmundsdóttir

það er greinilega í nógu að snúast í Norge þessa dagana en innilega til hamingju með nýstúdentinn þetta er alltaf merkilegur áfangi . og svo búið að selja húsið, mér finnst frekar tómlegt að keyra framhjá Akranesi núna, enginn til að heimsækja og fá kaffi þegar ég er á ferðinni. gangi ykkur vel í sumar, við heyrumst.

bestu kveðjur og hamingju óskir

Guðbjörg

Guðbjörg Guðmundsdóttir, 4.7.2007 kl. 13:35

3 identicon

Hæ Hæ kæru vinir og frændfólk!

Innilegar hamingjuóskir með Þórhildi..söluna á húsinu og síðast en ekki síst innilegar hamingjuóskir með afmælisdagin í dag Oddný mín..jæja þá ertu nú komin á fimmtugs aldurinn og það er nú bara ágætt skal ég segja þér.    Af okkur er allt gott að frétta ,Óli er útí í eyjum er búin að vera á sjó og ætlar í iðnskólan í rvk í haust. Karen fer bara vel með sig í Noregi , hún er rosa ánægð (veit ekki hvort ég næ henni heim), en okkur Óla er farið að hlakka til að fara út til hennar íágúst og vonandi getumvið hist þá. Eigðu góðan dag Oddný mín og skilaðu kærri kveðju til Þórhildar og Svavars.

kær kveðja Ásdís, Stjáni og börn

Ásdís frænka (IP-tala skráð) 7.7.2007 kl. 17:19

4 identicon

Innilega til hamingju með hana Þórhildi og til lukku með söluna á húsinu.  Bara allta að gerast ;-)  Og mín svo bara orðin 40 ára :-)  Til lukku með það !  Þegar maður var barn fannst manni fertugar konur.... kellingar ;-) en þú hefur nú lítið breyst síðan þú og Guðrún Ósk tókuð á móti mér í Köben hér um árið, ég 13 ára og þið þá sennilega 19 ára :-)

Hafið það alveg rosalega gott þarna úti.

Síðbúið afmælisknús, Friðdóra frænka

Friðdóra Kr. (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband