30.1.2007 | 15:55
Daglegt brauð
Er búin að vera eitthvað löt við pikkið. Nú styttist í að skólinn byrji, fyrsti fyrirlestur eftir jólafrí er á föstudaginn, þetta er nú meiri lúxusinn.
Ég er skráð í 40 ECTS einingar sem svara 20 einingum eins og við þekkjum þær. Þetta er svolítið mikið og eru einhverjir árekstrar, ég er sem sagt skráð í Bymorfologi, Konstruksjonsdesign, Innføring i landskapsarkitekturteori, Landskapsdata I og Landskapsdata III - datavisualisering/NOVA. Er að vonast til að sleppa við Innføring i landskapsarkitekturteori og fá hann metinn.
Þórhildur er að fara í skíðaferalag með bekknum sínum um næstu helgi, er ekki búin að fá upp úr henni hvert. En allavega á að vera í "hytte" á einhverju skíðasvæði. Þetta er ekki á vegum skólans þannig að móðirinn er pínu stressuð, en stelpan er jú orðin fullorðin.
Það fer ekki fram hjá neinum hér að Svavar á afmæli eftir nokkra daga, nánar tiltekið 10. febrúar. Eins og þær Erla og Jenný ;o) Hann ætla að bjóða stákunum í bekknum en þeir eru 14 talsins. Það verður brjálað fjör hér í 48 fermetrunum þegar að því kemur ;o)
Síðastliðinn sunnudag fórum við upp í brekku með vetrarbúnaðinn okkar, gönguskíði, sleða og snjóbretti. Því miður eru svigskíðin en á Íslandi. En þarna vorum við fjölskyldan ásamt, Bebbu, Tryggva og Óskari og var mikið fjör hjá okkur. Svavari leyst ekki meira en svo á blikuna þegar að sú gamla skellti sér á bretti, "Mamma þú er orðin allt of gömul" kallaði hann á eftir mér. En hér situr sú gamla óbrotin.
Um helgina verður hið árlega þorrablót Íslendingafélagsins í Osló. Við erum nokkur hér sem ætlum ekki að láta okkur vanta. Heimasíða félagsins er http://www.islendingafelagid.no
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 31.1.2007 kl. 13:28 | Facebook
Athugasemdir
Hahaha... Svavar góður. En þú ert ennþá bara þrjátíuog... svo að þú ert ekkert gömul.
Anna Viðarsdóttir, 31.1.2007 kl. 00:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.